Íslenski boltinn

Skimmeland farinn frá Blikum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skimmeland náði ekki að leika með meistaraflokksliði Breiðabliks.
Skimmeland náði ekki að leika með meistaraflokksliði Breiðabliks. mynd/heimasíða haugesund
Norðmaðurinn Tor Andre Skimmeland er farinn frá Breiðabliki og aftur til síns heimalands. Þetta kemur fram á blikar.is, stuðningsmannavef Breiðabliks.

Skimmeland kom til Breiðabliks í félagaskiptaglugganum í síðasta mánuði en tókst ekki að vinna sér sæti í liði Blika. Hann náði aldrei að leika með meistaraflokksliði Breiðabliks en lék þrjá leiki með 2. flokki félagsins.

Skimmeland, sem er 19 ára, hefur leikið fimm leiki með Haugesund í norsku úrvalsdeildinni.

Á Blikar.is er Skimmeland þakkað fyrir tímann hér á landi og honum óskað velfarnaðar í framtíðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×