Körfubolti

Heimsfriður gæti samið við Lakers á ný

Heimsfriður í búningi Lakers ásamt Dwight Howard.
Heimsfriður í búningi Lakers ásamt Dwight Howard. vísir/getty
Forráðamenn LA Lakers eru sagðir vera að skoða það í fullri alvöru að bjóða Metta World Peace samning hjá félaginu.

Viðræður hafa átt sér stað á milli Lakers og umboðsmanna Metta. Lakers mun þó aldrei bjóða meira en eins árs samning.

Heimsfriður er orðinn 35 ára gamall. Hann spilaði með Lakers á árunum 2009-13.

Hann hefur ekkert spilað í NBA-deildinni síðan Knicks losaði sig við hann leiktíðina 2013-14.

Kappinn hefur verið að æfa með Lakers síðustu misseri og greinilega náð að standa sig nógu vel til að heilla forráðamenn liðsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×