Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: KR-ingar náðu ekki neinu flugi | Myndbönd

Bjarni Þór og félagar í FH eru á góðri siglingu.
Bjarni Þór og félagar í FH eru á góðri siglingu. vísir/anton
Sextándu umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttu nótunum.

FH rúllaði yfir slakt lið Stjörnunnar á heimavelli og náðu sex stiga forskot á KR sem sneri við frá Eyjum vegna þoku við takmarkaða hrifningu fólks. Jonathan Glenn skoraði þrennu í sigri Breiðabliks á ÍA og Fjölnismenn misstu af gullnu tækifæri til að komast upp í 4. sætið þegar þeir gerðu jafntefli við nýkrýnda bikarmeistara Vals. Víkingur og Leiknir skildu jöfn í dramatískum leik og Fylkir og Keflavík gerðu sömuleiðis jafntefli í ótrúlegum leik.

Umfjöllun og viðtöl úr leikjum umferðarinnar:

FH 4-0 Stjarnan

Breiðablik 3-1 ÍA

Víkingur 1-1 Leiknir

Fylkir 3-3 Keflavík

Fjölnir 1-1 Valur


Erlendur fór létt með að dæma tvo stórleiki á þremur dögum.vísir/vilhelm
Góð umferð fyrir ...

... FH-inga

Fimleikafélagið hefur verið á góðri siglingu að undanförnu og slátraði áhugalausum Stjörnumönnum í Kaplakrika. FH-ingar spiluðu einn sinn besta leik í sumar og hefðu hæglega getað skorað fleiri en fjögur mörk. FH hefur unnið fjóra leiki í röð og virðist vera að toppa á réttum tíma. Sóknarleikurinn er í góðum gír og FH-ingar héldu auk þess hreinu í fyrsta sinn síðan í 7. umferð. Þeir eru líklegastir til að vinna Íslandsmeistaratitilinn eins og staðan er núna.

... Jonathan Glenn

Trínídadinn hefur komið eins og stormsveipur inn í lið Breiðabliks og verið algjör himnasending fyrir þá grænklæddu. Glenn var í miklum ham gegn ÍA og skoraði öll þrjú mörk Blika sem eru fjórum stigum á eftir toppliði FH. Glenn er auk þess orðinn markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar með níu mörk. Það skilur enginn af hverju ÍBV lét hann fara.

... Erlend Eiríksson

Málarameistarinn dæmdi bikarúrslitaleikinn á laugardaginn óaðfinnanlega og var svo mættur í Kaplakrika á mánudaginn til að dæma leik FH og Stjörnunnar. Erlendur blés ekki úr nös og hafði góð tök á leiknum. Erlendur hefur verið jafnbesti dómari deildarinnar í sumar og hefur sennilega aldrei verið betri.

Schoop og félagar komust ekki til Eyja og fengu bágt fyrir.vísir/anton
Vond umferð fyrir ...

... Milos Milojevic

„Það var ekkert leikplan hjá Leiknismönnum. Það var bara leikrit hjá þeim. Ég virði kollega mína báða en annar þeirra er að vinna fyrir KSÍ og á að vera öðrum til fyrirmyndar. Mér fannst hann ekki gera það í kvöld en ég ætla ekki að tjá mig meira um það.“ Þetta sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, eftir jafntefli sinna manna við Leikni. Milos hjólaði í Frey Alexandersson, kollega sinn hjá Leikni sem er einnig þjálfari kvennalandsliðsins. Freyr og samþjálfari hans, Davíð Snorri Jónasson, eru ekki barnanna bestir á hliðarlínunni í leikjum en Milos hefði mátt rökstyðja mál sitt betur en þessi ummæli virkuðu sem hálfgert neðanbeltishögg.

... Stjörnuna

Íslandsmeistararnir voru ævintýralega andlausir og slakir á móti FH í Krikanum, sama stað og þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn eftirminnilega í fyrra. Stjörnuliðið er ekki svipur að sjón síðan þá og titilvörn þess er hálf vandræðaleg. Og til að bæta gráu ofan á svart misstu Garðbæingar Ólaf Karl Finsen til Sandnes Ulf í Noregi í vikunni.

... orðspor KR

KR er sigursælasta en jafnframt hataðasta lið landsins. Uppákoman í gær þegar leikmenn liðsins komust ekki til Eyja í leik gegn ÍBV jók ekki á vinsældir Vesturbæjarliðsins en margir hneykluðust á framferði KR-inga og sökuðu þá um virðingar- og fyrirhyggjuleysi. KR vann allavega enga vinsældakosningu í gær og það verður eflaust baulað hressilega á þá í Eyjum í kvöld þegar leikurinn fer (vonandi) fram.

Það var boðið til markaveislu í Lautinni.vísir/anton
Tölfræðin og sagan:

*Breiðablik hefur ekki fengið á sig mark í fyrri hálfleik í 14 leikjum í röð í Pepsi-deildinni.

*Jonathan Glenn hefur skorað í 7 af síðustu 8 leikjum þar sem hann hefur byrjað inná með ÍBV og Breiðabliki í Pepsi-deildinni.

*Jonathan Glenn hefur skorað öll fimm mörk sín í Pepsi-deildinni á Kópavogsvelli í sama markið.

*Fyrsti leikur FH í Pepsi-deildinni í sumar þar sem að báðir Atlarnir eru meðal markaskorara.

*Þórarinn Ingi Valdimarsson hefur átt þátt í undirbúningi 7 af síðustu 8 marka FH-liðsins í Pepsi-deildinni.

*Stærsta tap ríkjandi Íslandsmeistara síðan að KR tapaði 4-0 á móti Breiðabliki 16. september 2012.

*Milos Milojevic hefur stýrt Víkingsliðinu einn í sex leikjum í Pepsi-deildinni í sumar og liðið hefur ekki enn tapað (3 sigrar, 3 jafntefli).

*Halldór hefur skorað þrjú síðustu mörk Leiknis í Pepsi-deildinni, miðvörðurinn Halldór Kristinn Halldórsson tvö þeirra en það þriðja skoraði Víkingurinn Halldór Smári Sigurðsson í rangt mark.

*Víkingar hafa aðeins náð í 9 stig af 21 mögulegu í Pepsi-deildinni á móti liðunum fjórum fyrir neðan sig í töflunni.

*Víkingar hafa náð í stig í öllum sjö leikjunum  þar sem Viktor Bjarki Arnarsson  hefur verið í byrjunarliðinu í Pepsi-deildinni í sumar (3 sigrar, 4 jafntefli).

*Fylkir hefur aðeins náð í 1 stig og fengið á sig 7 mörk í fyrstu tveimur heimaleikjum liðsins undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar.

*Fylkismenn skoruðu einu marki meira í fyrri hálfleik á móti Keflavík (3) heldur en í fyrri hálfeik í fyrstu fimmtán leikjum liðsins í Pepsi-deildinni í sumar (2).

*5 af 7 mörkum Alberts Brynjars Ingasonar fyrir Fylki í Pepsi-deildinni í sumar hafa komið í jafnteflisleikjum og tapleikjum.

*Martin Hummervoll hefur átt beinan þátt í öllum 4 mörkum Keflavíkurliðsins í síðustu 2 leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.

*Aron Sigurðarson hefur skorað 4 af 7 mörkum sínum í efstu deild á móti Val.

*Fjölnismenn hafa bara tapað 1 af síðustu 14 heimaleikjum liðsins í Pepsi-deildinni (7 sigrar, 6 jafntefli, 1 tap).

*Einar Karl Ingvarsson  hefur skorað tvö mörk í Pepsi-deildinni síðustu tvö tímabil, annað fyrir Fjölni á móti Val 2014 og hitt fyrir Val á móti Fjölni 2015.

*Fyrsta mark Vals í Pepsi-deildinni síðan 10. júlí þar sem Patrick Pedersen á ekki beinan þátt í markinu (mark eða stoðsending).



Ingvar Þór Kale fékk á sig ævintýralegt mark í Grafarvoginum.vísir/anton
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Fjölnisvelli:

„Það eru afar fáir á vellinum, það verður að segjast alveg eins og því. Það er sorglegt fyrir nýkrýnda bikarmeistara að fá sjá örfáa tugi rauðklæddra stuðningsmanna Vals í stúkunni. Þvílíkur brandari.“

Kristinn Páll Teitsson í Kaplakrika:

„Þvílíkt konfekt sem þessi sókn var. FH-ingar sundurspila Stjörnuliðið sem endar með fyrirgjöf frá Atla á Emil sem stangar boltann í netið. Takið þetta upp og sýnið börnunum ykkar, þetta var frábær spilamennska.“

Tryggvi Páll Tryggvason á Kópavogsvelli:

„Hér er mætingin svo góð að það er búið að opna gömlu stúkuna. Að vísu hefur enginn þegið boðið þannig að hún er tóm eins og er.“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Víkingsvelli:

„Nú rétt í þessu var TVG Zimsen borðinn sem var strengdur á milli varamannaskýlanna að falla niður. Ein spýta virtist halda honum uppi. Hún datt.“



Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:



Jonathan Glenn, Breiðablik - 9

Danny Schreurs, Leiknir - 3

Guðjón Baldvinsson, Stjarnan - 3

Heiðar Ægisson, Stjarnan - 3

Jeppe Hansen, Stjarnan - 3

Hörður Árnason, Stjarnan - 3

Emil Atlason, Valur - 3

Umræðan #pepsi365

Mark 16. umferðar Atvik 16. umferðar Markasyrpa 16. umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×