Íslenski boltinn

Ekki viss um að öll lið myndu komast upp með þetta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Forráðamenn ÍBV voru mjög svekktir út í KR í gær og fóru fram á að fá dæmdan sigur í leiknum sem þeir áttu að spila gegn KR í gær.

Aðeins hluti KR-liðsins komst til Eyja þar sem ekki var hægt að lenda vegna þoku. Leiknum var því frestað.

Eyjamenn voru mjög súrir enda voru samgöngur til Eyja í gegnum Landeyjahöfn opnar allan gærdaginn en KR-ingar tóku áhættuna og flugu. Því fór sem fór.

„Menn eru mjög svekktir. Okkur þykir KR taka mikinn séns með því að bóka flug, að hausti til, til Vestmannaeyja með tveggja tíma fyrirvara. Þetta er dýrt spaug. Ég er ekki viss um að öll lið myndu komast upp með þetta," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari ÍBv, svekktur.

„Þessi veðurspá var komin í gær. Það er fært núna og þeir hefðu komist ef þeir hefðu beðið aðeins út á velli," sagði Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV.

Bréfið sem ÍBV sendi KSÍ.
Seint í gærkvöldi sendi ÍBV síðan bréf til KSÍ þar sem lið fór fram á að fá dæmdan sigur í leiknum. Svona er bréfið.

Knattspyrnuráð ÍBV mótmælir harðlega þeirri niðurstöðu mótanefndar KSÍ að fresta leik ÍBV gegn KR í 16. umferð Pepsi-deildarinnar sem fara fram átti kl. 18.00 í dag á Hásteinsvelli.

Það eru búnar að vera greiðar samgöngur milli lands og Eyja í allan dag og engin gild ástæða fyrir frestun leiksins.

Allir sem tengjast leiknum, dómarar, fjölmiðlamenn, áhöfn útsendingarbíls, lýsendur og fleiri eru komnir á vettvang vandræðalaust. Allir, nema hluti KR-hópsins, sem það félag ákvað að skyldi velja eina ferðamátann sem var vafasamur í dag vegna veðurspár.

KR á að sjálfsögðu að bera hallann af því og vera dæmdur leikurinn tapaður ef þeir mæta ekki til hans.

Knattspyrnuráð ÍBV krefst þess að mótanefnd KSÍ endurskoði þessa ákvörðun og að KR verði dæmdur leikurinn tapaður."

Svo mörg voru þau orð. Pepsi-mörkunum var ekki frestað þrátt fyrir þessa uppákomu sem var eðlilega rædd í þættinum.

„Mér finnst að KR-ingar hafi átt að fara fyrr til Eyja. Eyjamenn hafa ekki misst af útileik í 20 ár og komast alltaf upp á land. KR er greinilega að starfa eftir regluverki KSÍ en ef það er tæpt þá eiga lið bara að taka bátinn. Það liggur beint við," sagði Hjörtur Hjartarson, sérfræðingur Pepsi-markanna.

Umræðuna um þessa uppákomu má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×