Íslenski boltinn

Íslenskir dómarar á faraldsfæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erlendur hefur verið í hópi bestu dómara landsins um árabil.
Erlendur hefur verið í hópi bestu dómara landsins um árabil. vísir/vilhelm
Íslenskir dómarar verða á faraldsfæti næstu daga að því er fram kemur á heimasíðu KSÍ.

Í kvöld dæmir Erlendur Eiríksson leik B36 og HB í 1. deildinni í Færeyjum og á morgun dæmir hann leik Viking og FC Suðuroy í efstu deild þar í landi.

Í kvöld verður svo Pétur Guðmundsson dómari í leik Frej og AFC United í næstefstu deild í Svíþjóð. Oddur Helgi Guðmundsson verður aðstoðardómari í þeim leik.

Þetta er hluti af norrænum dómaraskiptum knattspyrnusambanda Norðurlandanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×