Fótbolti

Jóhann Berg getur spilað á föstudag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. vísir/vilhelm
KSÍ tilkynnti í dag að Jóhann Berg Guðmundsson yrði með landsliðinu í komandi vináttulandsleikjum.

Jóhann Berg hefur verið að glíma við meiðsli og var ekki búist við því að hann næði fyrri leiknum gegn Póllandi á föstudag vegna meiðslanna.

Hann spilaði aftur á móti með Charlton um helgina og stóð sig vel. Lagði upp tvö mörk og er klár í slaginn. Hann bætist því við hópinn sem þegar var búið að velja.

Ísland spilar við Pólland á föstudag, eins og áður segir, svo gegn Slóvökum á þriðjudag.


Tengdar fréttir

Ungir fá tækifæri í landsliðinu

Eldri fastamenn úr landsliði Íslands hvíldir í æfingaleikjunum gegn Póllandi og Slóvakíu síðar í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×