Körfubolti

Meistararnir unnu sjötta leikinn í röð | Úrslit gærkvöldsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Curry hefur skarað fram úr í frábæru liði Golden State
Curry hefur skarað fram úr í frábæru liði Golden State Vísir/Getty
Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors unnu í nótt sjötta leikinn í röð í NBA-deildinni með fimmtán stiga sigri á Denver Nuggets, 119-104, en Golden State Warriors er síðasta taplausa lið deildarinnar að sex leikjum loknum.

Þrátt fyrir að það vanti þjálfara liðsins, Steve Kerr, á hliðarlínuna virðast leikmenn liðsins vera hungraðir í að sanna að meistaratitill síðasta árs hafi ekki verið nein heppni en liðið slátraði meðal annars Memphis Grizzlies á dögunum.

Stephen Curry sem var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar (e. Most Valuable Player) á síðasta tímabili var aðeins þremur fráköstum frá þrefaldri tvennu með 34 stig ásamt því að gefa tíu stoðsendingar og taka sjö fráköst í leiknum.

Eftir tap Toronto Raptors gegn Orlando Magic í nótt er Golden State síðasta ósigraða liðið í deildinni að sex leikjum loknum.

Harden var frábær að vanda.Vísir/Getty
Leikmenn Houston Rockets virðast vera að vakna til lífsins eftir slaka byrjun en liðið vann þriðja leik sinn í röð í nótt á útivelli gegn Sacramento Kings. James Harden steig heldur betur upp í fjarveru Dwight Howard og setti 43 stig ásamt því að gefa 13 stoðsendingar.

Leikmenn Los Angeles Lakers unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu með sex stiga sigri á Brooklyn Nets en í leiknum mættust tveir launahæstu leikmenn deildarinnar, Kobe Bryant og Joe Johnson.

Kobe var stigahæstur í liði Lakers með átján stig en hann hitti ekki úr fyrstu sex skotunum sínum í leiknum.

Maðurinn sem kallar sig kónginn.Vísir/getty
Þá varð LeBron James í nótt aðeins 20. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem nær þeim merka áfanga að setja niður 9000 skot í deildinni í naumum sex stiga sigri Cleveland Cavaliers á Philadelphia 76ers.

James var atkvæðamestur í liði Cleveland með 31 stig ásamt því að gefa 13 stoðsendingar í leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá helstu tilþrif gærkvöldsins ásamt samantekt á frábærum frammistöðum hjá Harden og Paul George í nótt.

Úrslit kvöldsins:

Toronto Raptors 87-92 Orlando Magic

Washington Wizards 98-118 Boston Celtics

Los Angeles Lakers 104-98 Brooklyn Nets

Philadelphia 76ers 102-108 Cleveland Cavaliers

Milwaukee Bucks 99-92 New York Knicks

Miami Heat 87-90 Indiana Pacers

Atlanta Hawks 121-115 New Orleans Pelicans

Detroit Pistons 100-92 Phoenix Suns

Denver Nuggets 104-119 Golden State Warriors

Houston Rockets 116-110 Sacramento Kings

Helstu tilþrif kvöldsins: George og Harden voru frábærir í nótt:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×