Fótbolti

Nafn Heimis fjarlægt að beiðni KSÍ

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Umrædd auglýsing frá Úrval Útsýn. Sigurður er til hægri á myndinni.
Umrædd auglýsing frá Úrval Útsýn. Sigurður er til hægri á myndinni. Samsett mynd/Vísir/Getty
Nafn Heimis Hallgrímssonar, annars þjálfara A-landsliðs karla, var fjarlægt úr heiti knattspyrnuskóla sem ferðaskrifstofan Úrval Útsýn skipuleggur fyrir unga knattspyrnuiðkendur.

Námskeiðið fer fram á Spáni í lok júlí næstkomandi. Upphaflega var vikulangt námskeiðið auglýst sem Knattspyrnuskóli Heimis Hallgríms, Errea og Coca Cola, líkt og sjá má á meðfylgjandi auglýsingu. Á heimasíðu Úrvals Útsýnar heitir það nú einfaldlega „Knattspyrnuskólinn“.

„Einhverjum fannst óviðeigandi að nafn mitt væri sett við skólann á þennan hátt og því dró ég mig úr skólastjórastöðunni,“ sagði Heimir í samtali við Vísi í dag vegna málsins. Hann reiknar þó með að eiga aðkomu að námskeiðinu eins og upphaflega stóð til.

„Það var farið af stað með góðum vilja en fyrst þetta fór fyrir brjóstið á einhverjum þá taldi ég þetta bestu niðurstöðuna,“ segir Heimir og bætir við að sonur hans verði þátttakandi á námskeiðinu og því verði hann staddur ytra á meðan það fer fram.

Sigurður Gunnarsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, er yfirmaður íþróttadeildar Úrvals Útsýnar. Hann segir að það sé rétt að nafn Heimis hafi verið fjarlægt að beiðni Heimis og KSÍ.

„KSÍ vildi tóna niður hans aðkomu, enda er hann í vinnu þar. Það var gert til að koma í veg fyrir einhverjar hugsanlegar raddir um hagsmunaárekstra.“

Sigurður bætir við að enginn hafi hætt við eftir að námskeiðslýsingunni var breytt og að vel hafi selst á námskeiðið. Líklegt er að það verði uppselt strax í næstu viku.

„Þetta er frábær skóli fyrir íslenska krakka og hefur verið tekið gríðarlega jákvætt í verkefnið. Það er rós í hnappagatið fyrir alla þá sem að því koma.“

Ekki náðist í Geir Þorsteinsson, formann KSÍ, við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×