Körfubolti

NBA: Mario Chalmers byrjar vel hjá Memphis | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zach Randolph fagnar Mario Chalmers í nótt.
Zach Randolph fagnar Mario Chalmers í nótt. Mynd/AFP
Oklahoma City Thunder liðið í NBA-deildinni í körfubolta saknar stjörnuleikmannsins Kevin Durant en nýi maðurinn hjá Memphis Grizzlies er hinsvegar að stimpla sig inn og liðið er á þriggja leikja sigurgöngu síðan að hann mætti á svæðið.

San Antonio Spurs vann fimmta leik sinn í röð, Chicago Bulls vann sinn fjórða sigur í fimm leikjum og Boston Celtics vann sinn þriðja leik í röð. Það gengur hinsvegar ekkert hjá Philadelphia 76ers og lítið sem ekkert hjá Houston Rockets.

Mario Chalmers skoraði 16 af 29 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þegar Memphis Grizzlies vann 122-114 sigur á Oklahoma City Thunder. Chalmers hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum og skoraði stigin 29 á 23 mínútum. Mike Conley skoraði 22 stig og Jeff Green var með 20 stig.

Þetta var þriðji leikur Mario Chalmers með Grizzlies-liðinu síðan að hann kom frá Miami og hann hefur hækkað stigaskor sitt í hverjum leik. Chalmers skoraði 11 stig í fyrsta leiknum, 16 stig kvöldið áður og svo 29 stig í nótt.

Russell Westbrook var langatkvæðamestur hjá Thunder-liðinu með 40 stig og 14 stoðsendingar en það dugði ekki til. Liðið tapaði öðrum leiknum í röð og saknar mikið hins meidda Kevin Durant.

Kawhi Leonard var með 19 stig og Manu Ginobili skoraði 17 stig þegar San Antonio Spurs vann Portland Trail Blazers 93-80. Þetta var fjórði sigur Spurs-liðsins í röð. Damian Lillard skoraði 27 stig fyrir Portland.

Jimmy Butler skoraði 17 stig í eins stigs sigri Chicago Bulls á Indian Pacers, 96-95, en Butler spilaði líka flotta vörn á Paul George í lokasókn leiksins. Derrick Rose var stigahæstur hjá Bulls-liðinu með 23 stig en þetta var þriðji sigur liðsins í röð og sá fjórði í síðustu fimm leikjum.

Dirk Nowitzki skoraði 21 stig fyrir Dallas Mavericks í 92-86 sigri á Philadelphia 76ers en Philadelphia liðið hefur tapað öllum ellefu leikjum tímabilsins og alls 21. leik í röð. Nýliðinn Jahlil Okafor var með 19 stig og 11 fráköst hjá 76ers. Nowitzki skoraði sjö af stigum sínum á mikilvægum kafla í lok leiksins.

Isaiah Thomas skoraði 23 stig fyrir Boston Celtics sem skoraði 32 stig í þriðja leikhluta og vann 111-95 sigur á Houston Rockets. Þetta var þriðji sigur Celtics-liðsins í röð en Houtson var aftur á móti að tapa fjórða leiknum í röð.

Brandon Knight var með þrefalda tvennu, 30 stig, 10 fráköst og 15 stoðsendingar, þegar Phoenix Suns vann 120-101 sigur á Los Angeles Lakers. Kobe Bryant lék ekki með Lakers-liðinu.

Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Philadelphia 76ers - Dallas Mavericks  86-92

Chicago Bulls - Indiana Pacers 96-95

Houston Rockets - Boston Celtics 95-111

Memphis Grizzlies - Oklahoma City Thunder 122-114

San Antonio Spurs - Portland Trail Blazers 93-80

Phoenix Suns - Los Angeles Lakers 120-101



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×