DeMarcus, LeBron og Westbrook í stuði í nótt | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 14. nóvember 2015 11:00 LeBron fagnar í leiknum í nótt. vísir/getty
Russell Westbrook var í stuði fyrir Oklahoma City í nótt, en Oklahoma vann sautján stiga sigur á Philadelphia 102-85. Russell gerði þrefalda tvennu; 21 stig, 17 fráköst og 11 stoðsendingar. Þetta var þriðji sigurleikur Oklahoma í röð, en það gengur ekki né rekur hjá Philadelphia sem tapaði sínum níunda leik í röð. Þeir hafa ekki unnið leik á tímabilinu, en stigahæstur hjá þeim var Christian Wood með fimmtán stig. Cleveland vann sinn áttunda leik í röð þegar liðið vann sex stiga sigur á New York. LeBron James var í stuði sem fyrr og skoraði 31 stig fyrir Cleveland og gaf sex stoðesndingar, en Cleveland var 72-66 undir fyrir lokaleikhlutann. Þar snéru þeir við blaðinu og unnu sinn áttunda leik í röð, en New York hefur unnið fjóra af fyrstu tíu leikjunum. Carmelo Anthony var stigahæstur hjá New York með 26 stig. Maður næturinnar var þó líklega DeMarcus Cousins sem lék á alls oddi í sigri Sacramento á Brooklyn, en hann skoraði 40 stig og tók þrettán fráköst í tveggja stiga sigri á Brooklyn, 111-109. Sacramento hefur aðeins unnið þrjá fyrstu leiki sína af sjö, en Brooklyn aðeins unnið einn af fyrstu átta. Ekki góð byrjun hjá þessum tveimur liðum. Öll úrslit næturinnar auk skemmtilegra myndbanda má sjá hér að neðan.Öll úrslit næturinnar: Minnesota - Indiana 103-107 Utah - Orlando 93-102 Atlanta - Boston 93-106 Cleveland - New York 90-84 New Orleans - Toronto 81-100 Charlotte - Chicago 97-102 Philadelphia - Oklahoma 85-102 Portland - Memphis 100-101 LA Lakers - Dallas 82-90 Houston - Denver 98-107 Brooklyn - Sacramento 109-111Mögnuð tilþrif LeBron: Meira gúmmelaði frá LeBron og félögum: Carmelo reyndist Cleveland erfiður í nótt, þá sérstaklega í fyrri hálfleik: Hörð barátta Paul George og Andrew Wiggings í nótt:
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira