Körfubolti

Tíu í röð hjá Golden State | Sjáðu allar körfunar hans Curry

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steph Curry er búinn að vera truflað góður það sem af er tímabils.
Steph Curry er búinn að vera truflað góður það sem af er tímabils. vísir/getty
NBA-meistarar Golden State Warriors eru enn ósigraðir en liðið vann tíunda leikinn í röð í nótt þegar það lagði Minnesota Timberwolves að velli, 129-116, á útivelli.

Stephen Curry, besti leikmaður síðustu leiktíðar, var í miklum ham í nótt og skoraði 46 stig auk þess sem hann tók fimm fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal tveimur boltum.

Curry, sem virðist stundum gleyma að hann er að spila á móti bestu körfuboltamönnum heims, hitti úr 15 af 25 skotum sínum úr teignum og átta af þrettán fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá hitti hann úr öllum átta vítaskotunum sínum.

Draymond Green bætti við 23 stigum fyrir meistarana auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf tólf stoðsendingar en Andrew Wiggins var stigahæstur heimamanna með 19 stig.

Allar körfur Currys:


Miami Heat byrjar leiktíðina ágætlega en liðið vann sjötta leikinn af níu og þann fimmta af sex á heimavelli í nótt.

Miami tók á móti Utah Jazz og vann eins stigs sigur eftir spennandi lokamínútur, 92-91.

Chris Bosh er allur að koma til eftir meiðslin og skoraði 25 stig í nótt auk þess sem hann tók átta fráköst og varði fjögur skot.

Tyler Johnson kom inn af bekknum og bætti við 17 stigum fyrir heimamenn en Derrick Flavors skoraði 25 stig fyrir Utah og Gordon Hayward skoraði 24 og tók ellefu fráköst.

Vertu úti, segir Bosh við Hayward


Los Angeles Clippers tapaði fyrir Phoenix Suns á útivelli, 118-114 og er nú með árangurinn 5-4 eftir níu leiki. Phoenix er búið að vinna fjóra og tapa fjórum.

Bradon Knight átti stjörnuleik fyrir heimamenn og skoraði 37 stig, en hann hitti úr sex af tíu þriggja stiga skotum sínum. Eric Bledsoe var svo grátlega nálægt þrennu með 26 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar.

Hjá gestunum frá Los Angels var Jamal Crawford stigahæstur með 18 stig af bekknum en enginn í byrjunarliði Clippers skoraði meira en ellefu stig.

Úrslit næturinnar:

Miami Heat - Utah Jazz 92-91

Minnesota Timberwolves - Golden State Warriors 116-129

Phoenix Suns - LA Clippers 118-104

Smá hollí hú-veisla hjá Golden State:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×