Íslenski boltinn

Eiður Smári lék seinni hálfleikinn í markalausu jafntefli

Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks.
Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks. Vísir/Anton
Eiður Smári Guðjohnsen lék seinni hálfleikinn í markalausu 0-0 jafntefli Blika gegn Víking í Bose-mótinu í dag en Eiður Smári hefur æft með Blikum undanfarnar vikur.

Eiður Smári er þessa dagana án félags en hann hefur æft með Breiðablik til þess að halda sér í formi og lék með liðinu einn æfingarleik í dag.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli en ásamt Eiði Smára lék Sergio Carrallo Pendás á reynslu með Breiðablik í dag en hann lék með unglingaliði Real Madrid á sínum yngri árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×