Körfubolti

Gamli, góði Kobe snéri aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe var í banastuði í nótt.
Kobe var í banastuði í nótt. vísir/getty
Lakers vann loks leik með Kobe í fínu formi og Golden State vann sinn 20. leik í röð.

Leikurinn gegn Washington í nótt var annar leikurinn á kveðjuferðalagi Kobe Bryant. Hann gat ekkert í fyrsta leiknum gegn Philadelphia en var frábær í leik tvö.

Hann skoraði 31 stig í sigri sem er hans besta í vetur. Tólf stig komu í lokaleikhlutanum þegar allt var undir. Annað kvöldið í röð fékk hann ótrúlegar móttökur frá áhorfendum og hitti líka forsetann.

„Ég hélt að allir hötuðu mig," sagði Kobe með bros á vör. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt."

Áhorfendur fögnuðu meira að segja körfum frá Kobe og líka þegar hann svo gott sem tryggði Lakers sigurinn á útivelli. Afar sérstakt.

Stephen Curry er ekkert að leika sér en hann skoraði 40 stig í nótt er Warriors vann sinn 20. leik í röð á tímabilinu. Að þessu sinni gegn Charlotte þar sem faðir Steph, Dell Curry, var að lýsa fyrir Hornets og bað son sin um að eyðileggja ekki kvöldið. Steph tók ekkert mark á föður sínum og gerði nákvæmlega það.

Þessi 20-0 byrjun Golden State er að sjálfsögðu sú besta frá upphafi.

Úrslit:

Charlotte-Golden State  99-116

Washington-LA Lakers  104-108

Detroit-Phoenix  127-122

NY Knicks-Philadelphia  99-87

Atlanta-Toronto  86-99

Chicago-Denver  99-90

Houston-New Orleans  108-101

San Antonio-Milwaukee  95-70

LA Clippers-Indiana  91-103

Staðan í NBA-deildinni.

Móttökurnar sem Kobe fékk í nótt voru ótrúlegar.vísir/getty
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×