Körfubolti

Walton þjálfari mánaðarins í NBA með engan skráðan sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Golden State er óstöðvandi undir stjórn Walton.
Golden State er óstöðvandi undir stjórn Walton. vísir/getty
Luke Walton, sem stýrir meisturum Golden State Warriors í fjarveru Steve Kerr, var í gær valinn þjálfari mánaðarins í Vesturdeildinni í NBA.

Það er óhætt að segja að þjálfaraferilinn fari vel af stað hjá Walton en Golden State hefur unnið fyrstu 19 leiki sína í deildinni, sem er met.

En samkvæmt skráningarreglum NBA-deildarinnar er Kerr, sem er enn að jafna sig eftir bakaðgerð,  aðalþjálfari Golden State og því fær Walton sigrana sem Golden State vinnur undir hans stjórn ekki skráða á sig. Opinberlega er hann því með árangurinn 0-0 á þjálfaraferlinum.

Miðað við framgang Golden State undir stjórn Walton hlýtur hann að koma til greina í þau aðalþjálfarastörf sem kunnu að losna í framtíðinni. Hann er allavega búinn að leggja inn gott orð fyrir sjálfan sig.

Golden State hefur spilað frábærlega það sem af er vetri en liðið vinnur sína leiki með að meðaltali 15,4 stiga mun, sem er það mesta í NBA. Þá skorar Golden State flest stig allra liða í deildinni, eða 115,3 stig að meðaltali í leik.

Sjá einnig: Litlu strákarnir orðnir stærstir í NBA

David Blatt var valinn þjálfari mánaðarins í Austurdeildinni en undir hans stjórn hefur Cleveland Cavaliers unnið 13 af 17 leikjum sínum.

NBA

Tengdar fréttir

Curry magnaður í einn einum sigri Golden State | Myndbönd

Sigurganga núverandi meistaranna í NBA-deildinni, Golden State Warriors, virðist engan enda ætla að taka. Þeir unnu sinn sautjánda leik í röð í deildinni í nótt nú gegn Phoenix, en þeir hafa unnið alla sína leiki á tímabilinu.

Litlu strákarnir orðnir stærstir í NBA

NBA-meistarar Golden State Warriors hafa þegar skapað sér sérstöðu í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta með því að vinna sextán fyrstu leiki tímabilsins. Þeir eru ekki bara að vinna sigra heldur nær alla leikina með miklum mun. Lifir sigurgangan fram á jóladag?

Besta byrjun liðs frá upphafi

Golden State Warriors komst í sögubækur NBA-deildarinnar með öruggum sigri á Lakers í nótt.

Golden State slapp með skrekkinn

Hið fullkomna tímabil Golden State Warriors heldur áfram en félagið vann sinn 19. leik í röð í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×