Körfubolti

Körfuboltakvöld: Hann er með allan pakkann | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson fór á kostum þegar Kanalausir Njarðvíkingar unnu sex stiga sigur á Haukum í gær, 73-79.

Landsliðsmaðurinn dró vagninn hjá Njarðvík; skoraði 30 stig, tók níu fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum í leiknum.

„Þetta er einn albesti leikmaðurinn í deildinni,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson um Hauk í Domino's Körfuboltakvöldi í gær.

„Það er ótrúlega gaman að sjá hvað það er mikill kraftur í honum. Þessi strákur er með allan pakkann,“ bætti Jón Halldór við.

„Þetta virkar svo áreynslulaust og það er eins og þetta sé allt partur af „programmet“. Hann er magnaður,“ skaut Hermann Hauksson inn í en Haukur er með 19,6 stig, 9,3 fráköst og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik í vetur.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×