Körfubolti

Enn eitt tapið hjá Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant. vísir/getty
Kobe Bryant byrjaði með látum gegn Memphis í nótt en það dugði ekki til sigurs.

Kobe skoraði ein 14 stig í fyrsta leikhluta og var óstöðvandi. Hann fékk aftur á móti litla aðstoð frá félögum sínum allan leikinn og Lakers tapaði sannfærandi.

Kobe endaði leikinn með 19 stig og Mike Conley skoraði jafnmikið fyrir Memphis í leiknum.

Kobe spilaði aðeins fyrsta og þriðja leikhlutann vegna hnémeiðsla. Þetta var þriðja tap Lakers í röð og fimmta tapið í síðustu sex leikjum.

Úrslit:

Memphis-LA Lakers  112-96

Boston-NY Knicks  100-91

Oklahoma-Denver  122-112

Sacramento-Portland  94-98

Staðan í NBA-deildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×