Körfubolti

Fengið tvö tilboð en tekur sér líklega frí fram á sumarið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Magnús Þór er hér í leik með Grindavík gegn KR í haust. Óvíst er hvar hann spilar næst.
Magnús Þór er hér í leik með Grindavík gegn KR í haust. Óvíst er hvar hann spilar næst. vísir/ernir
Bakvörðurinn Magnús Þór Gunnarsson er ekki búinn að finna sér nýtt félag eftir viðskilnaðinn við Grindavík um áramótin. Magnús Þór var á sínu fyrsta ári hjá Grindavík og var með 12,4 stig og 3,1 frákast að meðaltali í þeim níu deildarleikjum sem hann spilaði á fyrri hluta tímabilsins í Domino's-deild karla.

„Það er ekkert komið í ljós. Ég mun áfram fylgjast með körfunni og sjá svo hvað gerist. Hugsa um lífið og þess háttar í leiðinni. En það er ekkert ákveðið og eins og er reikna ég einfaldlega með því að vera í pásu fram á sumar,“ sagði Magnús Þór í samtali við Fréttablaðið í gær.

Ástæður þess að hann hætti hjá Grindavík voru persónulegar og vildi hann ekki greina nánar frá þeim. „Ég kveð Grindavík svekktur en samt sáttur. Mig langaði að vera áfram en það var ekki möguleiki að þessu sinni. Þetta er ákvörðunin sem ég tók og stend ég og fell með henni. Grindavík er gott félag sem gerði heilmikið fyrir mig. Fyrir það eiga þeir lof skilið í Grindavík og ekkert annað.“

Hann segir að það gæti verið erfitt að halda sér til hlés eftir því sem nær dregur úrslitakeppninni en félagaskiptaglugginn á Íslandi er þó aðeins opinn til loka mánaðarins.

„Ég hef fengið tvö tilboð og auðvitað útiloka ég ekki neitt – ég væri klikkaður ef ég gerði það. En eins og staðan er nú þá er ég rólegur og í góðum gír,“ segir hann.

Magnús Þór hefur lengst af spilað með Keflavík á sínum ferli en segir að félagið sé ekki eitt þeirra sem hafi gert honum tilboð. Ef frá eru taldir nokkrir mánuðir í Danmörku hefur Magnús Þór aldrei spilað með liði utan Suðurnesjanna.

„Mig skiptir engu máli með hvaða liði ég spila – ég legg mig alltaf mikið fram og spila eins hvar sem ég er. Ef ég fer í nýtt lið þá kaupi ég mér bara nýja skó og verð töffari í því liði eins og öllum hinum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×