Handbolti

Ánægðastur með handboltann sem við erum að spila

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Geir súr eftir leik í gær.
Geir súr eftir leik í gær. vísir/getty
„Nú er maður bara á leiðinni heim að sleikja sárin,“ segir Geir Sveinsson, þjálfari þýska félagsins Magdeburg, en hans lið var grátlega nálægt því að vinna þýsku bikarkeppnina í gær er það mætti Evrópumeisturum Flensburg í úrslitaleik.

Það var jafnt, 24-24, eftir venjulegan leiktíma og því varð að framlengja. Eftir framlenginguna var enn jafnt, 27-27, og því varð að grípa til vítakastkeppni. Hana vann Flensburg 5-4 en eini maðurinn sem klikkaði var Robert Weber sem er vítaskytta Magdeburg.

„Fyrir vítakeppnina þökkuðum við Ljubomir Vranjes (þjálfari Flensburg) hvor öðrum fyrir leikinn enda ekkert annað sem við gátum gert þegar út í vítakeppnina var komið,“ segir Geir en hann var búinn að undirbúa sitt lið fyrir vítakastkeppni. Var samt ekki erfitt að standa hjá og horfa á vítakastkeppnina?

„Nei, mér fannst það í sjálfu sér ekki svo erfitt enda var ég búinn að undirbúa liðið fyrir það og æfa þetta. Meira get ég ekki gert. Það er fáránlegt að níu víti af tíu skuli hafa endað inni. Það sem er kannski enn ótrúlegra er að okkar besta vítaskytta hafi verið sá eini sem klikkaði. Kannski pínu skrifað í skýin.“

Þetta var fimmta árið í röð sem Flensburg kemst í úrslit en liðið var búið að tapa úrslitaleiknum fjögur ár í röð. Liðið var ansi nærri því að tapa þeim fimmta. Stórkostlegt stemning var í hinni glæsilegu O2-höll í Hamborg.

„Það er mikil ánægja með alla helgina. Leikirnir vinnast allir með einu marki og stemningin frábær. Ég hef aldrei verið þarna áður og þetta er í sjálfu sér alveg einstakt. Ótrúlegt.“

Innistæða fyrir þessu hjá okkur

Geir hefur verið að gera frábæra hluti með lið Magdeburg í vetur. Var næstum búinn að vinna bikarinn og er svo með liðið í fjórða sæti í deildinni sem gefur Evrópusæti.

„Ég er einstaklega ánægður með þann handbolta sem við erum að spila. Það skiptir þjálfarann mestu máli. Við vorum mættir þarna til þess að vinna og menn sýndu að það var innistæða fyrir því. Ég er mjög stoltur af liðinu mínu. Við unnum liðið sem vann keppnina í fyrra og erum svo einu vítakasti frá því að vinna Evrópumeistarana.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×