Körfubolti

Golden State og San Antonio óstöðvandi á heimavelli | Curry meiddist á ný

Draymond Green fór á kostum í leiknum í nótt með þrefalda tvennu.
Draymond Green fór á kostum í leiknum í nótt með þrefalda tvennu. Vísir/getty
Golden State Warriors og San Antonio Spurs unnu enn einn heimaleikinn í röð í nótt en hvorugt lið hefur tapað á heimavelli á þessu ári í NBA-deildinni.

Golden State fékk Denver Nuggets í heimsókn og var Stephen Curry, verðmætasti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili mættur á ný í byrjunarlið Golden State eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna meiðsla.

Meiðslin tóku sig aftur upp hjá Curry sem lék aðeins fjórtán mínútur í leiknum en Golden State þurfti á framlengingu að halda til þess að knýja fram sigur gegn Denver.

Draymond Green steig upp í fjarveru Curry og bar lið Golden State til sigurs með þrefaldri tvennu, 29 stig, 17 fráköst og 14 stoðsendingar ásamt 4 stolnum boltum.

Hefur Golden State ekki enn tapað á heimavelli í vetur og unnið fyrstu 16 leikina í Oracle Arena en leikmenn San Antonio Spurs unnu 20. leikinn í röð á heimavelli í deildinni í nótt.

Tveir góðir, Popovich og Parker.Vísir/getty
Heimamenn í San Antonio gerðu út um leikinn í 3. leikhluta en þeir fóru með 24 stiga forskot inn í fjórða leikhluta og náðu leikmenn Houston Rockets ekki að ógna forskotinu í 4. leikhluta.

Afar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Gregg Popovich en þetta var í fyrsta sinn á 19 ára ferlinum sem hinn goðsagnakenndi Tim Duncan skoraði ekki stig í leik sem hann tók þátt í.

LeBron James gat leyft sér að taka því rólega og hvíla í fjórða leikhluta í öruggum 25 stiga sigri Cleveland Cavaliers á Orlando Magic í gær en Cleveland náði 20 stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta.

Þrátt fyrir að leika ekkert í fjórða leikhlutanum var LeBron atkvæðamestur með 29 stig en Kevin Love bauð upp á tvöfalda tvennu með tíu stig og þrettán fráköst.

George Karl komst upp að hlið Phil Jackson með sigrinum í nótt.Vísir/Getty
Óhætt er að segja að áhorfendur í leik Sacramento Kings og Phoenix Suns hafi fengið nóg fyrir peninginn í 142-119 sigri Sacramento Kings en þetta var sigurleikur númer 1155 hjá þjálfara Kings, George Karl.

Fer Karl upp að hlið hins goðsagnarkennda Phil Jackson með sigrinum í 5. sætið yfir flesta sigra sem þjálfari liðs í NBA-deildinni.

Myndband með helstu tilþrifum kvöldsins má sjá hér fyrir neðan en hér má sjá stöðuna í NBA-deildinni.

Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Boston Celtics 97-100 Brooklyn Nets

Sacramento Kings 142-119 Phoenix Suns

Charlotte Hornets 90-109 Oklahoma City Thunder

Indiana Pacers 94-82 Detroit Pistons

Cleveland Cavaliers 104-79 Orlando Magic

Minnesota Timberwolves 85-95 Milwaukee Bucks

Dallas Mavericks 98-105 New Orleans Pelicans

San Antonio Spurs 121-103 Houston Rockets

Utah Jazz 92-87 Memphis Grizzlies

Golden State Warriors 111-108 Denver Nuggets

Los Angeles Clippers 130-99 Philadelphia 76ers

Bestu tilþrif kvöldsins: Draymond Green fór á kostum:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×