Körfubolti

Sjáðu sigurkörfuna hjá Durant | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kevin Durant tryggði sínum mönnum sigurinn í nótt.
Kevin Durant tryggði sínum mönnum sigurinn í nótt. vísir/getty
Kevin Durant var hetja Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Orlando Magic, 117-114, á heimavelli.

Durant, sem var stigahæstur í liði Oklahoma City með 37 stig, skoraði sigurkörfuna þegar hálf sekúnda var eftir með þriggja stiga skoti.

Orlando jafnaði leikinn í 114-114 þegar lítið var eftir en í staðinn fyrir að taka leikhlé treysti  Billy Donovan, þjálfari OKC, Durant fyrir að taka rétta ákvörðun í lokasókninni og það borgaði sig.

Durant stökk upp í þriggja stiga skot með mann í andlitinu og hitti, en gestirnir höfðu svo ekki nægan tíma til að ná lokaskoti og reyna að jafna metin.

Þetta var tólfti sigur OKC í síðustu þrettán leikjum. Liðið er á miklum skriði þessar vikurnar með Durant og Russell Westbrook í stuði, en leikstjórnandinn Westbrook nældi í þriðju þrennuna í röð í nótt þegar hann skoraði 24 stig, tók 19 fráköst og gaf 14 stoðsendingar.

Sigurkörfu Durants má sjá hér að neðan.

Kevin Durant. Clutch.

Posted by Bleacher Report on Wednesday, February 3, 2016
NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×