Íslenski boltinn

Valsmenn á toppinn eftir sigur á ÍBV | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/stefán
Valur komst í kvöld á toppinn í riðli eitt í Lengjubikar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á ÍBV á gervigrasinu á Valsvelli.

Guðjón Pétur Lýðsson skoraði fyrra markið með hnitmiðuðu skoti á 68. mínútu og þremur mínútum fyrir leikslok bætti Nicolaj Hansen við öðru marki eftir fallega sókn Valsliðsins fram hægri kantinn.

Hansen er maðurinn sem að taka við af Patrick Pedersen og skoraði hann í dag þrátt fyrir að eiga nokkuð erfitt uppdráttar í framlínunni. Sigur Valsmanna var sanngjarn en liðið fékk fleiri tækifæri til að bæta við mörkum.

Valur er á toppi riðilsins sem fyrr segir með átta stig en Keflavík er með sjö stig og Stjarnan sex stig. Þau hafa leikið einum leik minna en Valur.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum sem var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD.

Guðjón Pétur kemur Val í 1-0: Nicolaj Hansen kemur Val í 2-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×