Fótbolti

Svona unnu stelpurnar bronsið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ísland vann í gær til bronsverðlauna á Algarve-mótinu í Portúgal í gær en vítaspyrnukeppni þurfti til í bronsleiknum gegn Nýja-Sjálandi.

Andrea Rán Snæfeld skoraði mark Íslands í venjulegum leiktíma en Nýja-Sjáland jafnaði og því réðust úrslit í vítaspyrnukeppni.

Bæði lið nýttu allar fimm fyrstu spyrnur sínar en Guðbjörg Gunnarsdóttir varði svo í bráðabana áður en Sandra María Jessen tryggði sigurinn.

Mark Andreu og vítaspyrnukeppnina má sjá á vef Sport TV.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×