Ótrúlegt skotkort Klay Thompson í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2016 20:30 Klay Thompson. Vísir/EPA
Klay Thompson og félagar hans í Golden State Warriors fögnuðu sínum 63. sigri í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Warriors-liðið vann þá fimm stiga sigur á Minnesota Timberwolves, 109-104. Klay Thompson skoraði 17 stig í leiknum en það var hvernig hann skoraði þessi stig sem vakti mesta athygli. Klay Thompson klikkaði nefnilega á öllum níu tveggja stiga skotum sínum í leiknum en var síðan með hundrað prósent skotnýtingu í skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Thompson tók fjögur tveggja stiga skot í fyrsta leikhlutanum sem klikkuðu öll en hann hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleiknum, eitt í hvorum leikhluta. Thompson klikkaði á fjórum tveggja stiga skotum í þriðja leikhlutanum en hitti þá úr þremur þriggja stiga skotum. Í lokaleikhlutanum tók Klay Thompson aðeins eitt skot og það var tveggja stiga skot sem klikkaði. Klay Thompson er með 50,8 prósent tveggja stiga skotnýtingu og 42,4 prósent þriggja stiga skotnýtingu á þessu tímabili en hann er að skorað 22,0 stig að meðaltali í leik. ESPN tók saman skotkort Klay Thompson í leiknum sem var afar skrautlegt eins og sjá má hér fyrir neðan.Klay Thompson was perfect from 3, imperfect from 2 (0-9 on 2-point FG) pic.twitter.com/Yl7Pob9UTz— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) March 22, 2016
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira