Körfubolti

Ótrúlegt skotkort Klay Thompson í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Klay Thompson.
Klay Thompson. Vísir/EPA
Klay Thompson og félagar hans í Golden State Warriors fögnuðu sínum 63. sigri í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Warriors-liðið vann þá fimm stiga sigur á Minnesota Timberwolves, 109-104. Klay Thompson skoraði 17 stig í leiknum en það var hvernig hann skoraði þessi stig sem vakti mesta athygli.

Klay Thompson klikkaði nefnilega á öllum níu tveggja stiga skotum sínum í leiknum en var síðan með hundrað prósent skotnýtingu í skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Thompson tók fjögur tveggja stiga skot í fyrsta leikhlutanum sem klikkuðu öll en hann hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleiknum, eitt í hvorum leikhluta.  Thompson klikkaði á fjórum tveggja stiga skotum í þriðja leikhlutanum en hitti þá úr þremur þriggja stiga skotum. Í lokaleikhlutanum tók Klay Thompson aðeins eitt skot og það var tveggja stiga skot sem klikkaði.

Klay Thompson er með 50,8 prósent tveggja stiga skotnýtingu og 42,4 prósent þriggja stiga skotnýtingu á þessu tímabili en hann er að skorað 22,0 stig að meðaltali í leik.

ESPN tók saman skotkort Klay Thompson í leiknum sem var afar skrautlegt eins og sjá má hér fyrir neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×