Körfubolti

Nowitzki og Williams afgreiddu Portland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nowitzki og Williams fagna í nótt.
Nowitzki og Williams fagna í nótt. vísir/getty
Hinn 37 ára gamli Dirk Nowitzki átti magnaðan leik í nótt og skoraði 40 stig fyrir Dallas sem lagði Portland í framlengdum leik.

Það var jafnt eftir venjulegan leiktíma, 113-113, en þá tókU Nowitzki og Deron Williams við stjórn leiksins og sigldu leiknum heim fyrir Dallas.

Williams skoraði þrist í framlengingunni áður en Nowitzki skoraði átta stig í röð. Allt eftir stoðsendingar frá Williams.

Með sigrinum náði Dallas betri stöðu í í innbyrðisviðureignum liðanna.

Úrslit:

Dallas-Portland  132-120

Toronto-Orlando  105-100

Philadelphia-Boston  105-120

New Orleans-LA Clippers  109-105

Milwaukee-Utah  85-94

NY Knicks-Sacramento  80-88

Staðan í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×