Íslenski boltinn

Tíu FH-ingar ekki í vandræðum með Þróttara | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslandsmeistarar FH lögðu nýliða Þróttar, 2-0, í riðli fjögur í Lengjubikar karla í fótbolta í dag en bæði mörk FH-inga komu í fyrri hálfleik.

Eftir að Trausti Sigurbjörnsson, markvörður Þróttara, var búinn að halda sínum mönnum á lífi framan af leik skoraði FH loks fyrsta markið. Það gerði besti leikmaður Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð, Emil Pálsson, úr vítaspyrnu á 34. mínútu leiksins.

Bergsveinn Ólafsson, miðvörðurinn öflugi sem kom til FH frá Fjölni í vetur, bætti svo öðru marki FH við á 45. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu, 2-0.

Eftir sex mínútur í seinni hálfleik fékk Guðmann Þórisson sitt annað gula spjald og þar með rautt. Spjaldið var nokkuð umdeilt og tóku FH-ingar ekki vel í dóminn eins og sjá má hér.

Þrátt fyrir að vera einum fleiri tókst Þrótturum ekki að skora en FH-ingar voru nær því að bæta við. Kristján Flóki Finnbogason átti skot í innanverða stöngina og Atli Guðnason skot í slána.

Lokatölur 2-0 FH-ingar á toppi riðlis fjögur með tólf stig eða fullt hús eftir fjóra leiki. Þeir eru búnir að vinna rirðilinn því Leiknir Reykjavík getur aðeins náð ellefu stigum.

Þrótturum hefur gengið afleitlega á undirbúningstímabilinu. Þeir hafa ekki unnið einn af ellefu leikjum liðsins í Fótbolti.net-mótinu, Reykjavíkurmótinu né Lengjubikarnum og aðeins gert eitt jafntefli.

Þróttur er búinn að skora þrjú mörk í þessum ellefu leikjum og fá á sig 25. Lengst liðu 670 mínútur á milli marka hjá liðinu og þá er það búið að tapa fyrir þremur 1. deildar liðum.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×