Körfubolti

„Köstum ekki dómurum í hafið fyrir ein mistök“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dómaratríóið í leiknum í gær. Rögnvaldur er lengst til vinstri.
Dómaratríóið í leiknum í gær. Rögnvaldur er lengst til vinstri. Vísir/Ernir
Rúnar Birgir Gíslason, formaður dómaranefndar KKÍ, segir að það beri ekki að refsa dómurum fyrir ein mistök þó þau kynnu að vera afdrifarík.

Spekingarnir í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport gagnrýndu Rögnvald Hreiðarsson, dómara, fyrir mistök sem hann gerði í oddaleik Stjörnunnar og Njarðvíkur á fimmtudag.

Sjá einnig: Hermann reif Rögnvald í sig fyrir „fáránlega lélegan dóm“

Rögnvaldur sá ekki þegar Haukur Helgi Pálsson fór út af þegar hann var að bjarga boltanum eftir misheppnað innkast Njarðvíkur. En í stað þess að dæma Stjörnumönnum boltann fengu Njarðvíkingar hann og tryggðu sér 79-75 sigur.

„Það eru allir sammála um að hann gerði mistök í lok þess leiks. Það viðurkennir hann manna fyrstur,“ sagði Rúnar Birgir við Vísi í dag.

Í Körfuboltakvöldi í gær, eftir leik KR og Njarðvíkur, var gagnrýnt að Rögnvaldur hafi mætt strax í næsta leik þeirra grænklæddu til að dæma.

„Rögnvaldur er mannlegur eins og aðrir. En þarna er um reyndan dómara að ræða sem hefur verið afar vel liðinn af félögunum. Þó menn geri ein mistök þá hendum við mönnum ekki í hafið fyrir það.“

Sjá einnig: KR vann í tvíframlengdum leik

Rúnar Birgir segir að það sé álitamál hvort að það sé hollt að dómarar dæmi strax eftir að svona mál eða stígi til hliðar. Hann rifjar upp atvik sem hann lenti sjálfur í þegar hann var dómari í Danmörku.

„Ég gerði mistök og átti að dæma fljótlega aftur. Ég var tekinn af leiknum og það fannst mér óþægilegt. En það er bara eitt sjónarmið af mörgum og ég skil umræðuna.“

„Umræðan innan dómaraforystunnar og dómarahópsins hefur verið mikil en það er ljóst að ef Rögnvaldur hefði ekki dæmt leikinn í gær hefði hann dæmt þann næsta.“

Dómarar ósammála um lokasókn Njarðvíkur

Rögnvaldur var svo aftur í brennideplinum í gær. Hann dæmdi ekki fót á Helga Má Magnússon sem náði að vinna boltann af Hauki Helga Pálssyni, Njarðvíkingi, undir lok síðari framlengingar leiksins.

Sjá einnig: Stöðvaði lokasókn Njarðvíkinga með fætinum

„Það er matsatriði fram í rauðan dauðann. Við höfum rætt þetta mikið innan dómarahópsins og það eru einfaldlega ekki allir sammála um þetta,“ sagði Rúnar Birgir.

„Eins og kemur fram í reglunum [sem má lesa hér fyrir neðan] þá snýst þetta um túlkun á því hvort að hreyfing Helga Más hafi verið eðlileg eða ekki. Það er mat hvers dómara.“

Hér má sjá regluna:

„Leikmaður skal ekki hlaupa með knöttinn, sparka honum viljandi eða hindra för hans með hvaða hluta fótarins sem er eða kýla hann með hnefa. Hins vegar er það ekki leikbrot að snerta knött með fæti óviljandi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×