Körfubolti

Lakers seldi Kobe-vörur fyrir 150 milljónir á lokaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant eftir lokaleikinn umrkingdur fjölmiðlamönnum.
Kobe Bryant eftir lokaleikinn umrkingdur fjölmiðlamönnum. Vísir/Getty
Kobe Bryant setti ekki aðeins stigamet inn á vellinum í síðasta leik sínum í NBA í fyrrinótt heldur setti Los Angeles Lakers einnig met í sölu NBA-varnings á einum degi á einum stað.

Lokaleikur Kobe Bryant var með Los Angeles Lakers á móti Utah Jazz í Staples Center og skoraði kappinn þá 60 stig í endurkomusigri þar sem Kobe skoraði meðal annars átta stiga á lokamínútunni.

Staples Center nýtti að sjálfsögðu tækifærið á öllu Kobe-æðinu sem var í gangi og tókst á endanum að selja Kobe-vörur fyrir 1,2 milljónir dollara eða um 150 milljónir íslenskra króna.

Sean Ryan, varaforseti AEG markaðfyrirtækisins, sagði ESPN frá því að með þessu hefðu Kobe og Los Angeles Lakers sett nýtt heimsmet í sölu á einum stað á einum degi.  

Gamla heimsmetið var frá 10. desember 2007 þegar bandaríska hljómsveitin Led Zeppelin hélt sína fyrstu stóru tónleika í þrjá áratugi í O2 höllinni í London og seldi varning tengdum hljómsveitinni fyrir eina milljón dollara.

Það var dýrt á lokaleik Kobe Bryant en meðalverð á miða á leikinn var 230 dollarar eða um 29 þúsund krónur íslenskar. Áhorfendur eyddu síðan að meðaltali 61 dollara í Kobe-vörur þetta kvöld sem gera tæplega átta þúsund krónur íslenskar. Mikið af Kobe-vörunum seldust líka upp í Staples Center enda voru allir á svæðinu vitlausir í flotta minjagripi um þetta magnaða kvöld.

Kobe Bryant sjálfur fékk að sjálfsögðu stóran hluta af gróðanum í gegnum fyrirtæki sitt en eins græddu Lakers og AEG mikið þetta kvöld í Staples Center.

Kobe Bryant átti líka aukaútspil í lok blaðamannafundar síns en hann endaði Kobe á orðunum: "Mamba Out". Mínútum síðar voru bolir með "Mamba Out" komnir til sölu á heimasíðu hans. Þeir voru í þremur litum og kostuðu 25 dollara hver eða um 3100 krónur.

Áhorfendurnir fengu líka mikið fyrir sinn snúð enda setti Kobe Bryant met í leiknum og það verður ekki metið til fjár að geta montað sig að því næstu áratugina að hafa verið á síðasta leik Kobe Bryant í NBA-deildinni.

Vísir/Getty
"Mamba Out"Vísir/Getty
NBA

Tengdar fréttir

Kobe skoraði 60 stig í síðasta leiknum sínum | Myndbönd

Kobe Bryant kvaddi NBA-deildina í körfubolta með magnaðri frammistöðu í nótt en kappinn skoraði þá 60 stig í 101-96 sigri Los Angeles Lakers á Utah Jazz. Þetta var síðasti leikur Kobe á tuttugasta og síðasta tímabili hans í NBA.

Kobe fékk ekki fallega kveðju frá Rolling Stone

Kobe Bryant lék sinn síðasta leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem fimm hundruð fjölmiðlamenn voru á staðnum og færri komust að en vildu. Það hefur verið mikið skrifað og fjallað um Kobe á síðustu dögum sem er ekkert skrítið enda goðsögn í lifanda lífi.

Kveðja, Kobe

Kobe Bryant spilaði sinn síðasta leik á ferlinum í nótt en þá lauk hans tuttugasta tímabili í NBA-deildinni. Það eru afar fáir leikmenn í sögu NBA sem hafa afrekað jafnmikið og Kobe á þessum tveimur áratugum. Fréttablaðið skoðar í dag svipmyndir frá þessum magnaða ferli svörtu mömbunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×