Íslenski boltinn

Grindavík með fullt hús

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/andri marinó
Grindavík er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Inkasso-deild karla, en liðið vann 0-1 útisigur á Seyðisfirði í dag.

Staðan var markalaus í hálfleik, en á 57. mínútu varð Stefan Spasic fyrir því óláni að skora sjálfsmark og 1-0 sigur Grindavíkur staðreynd.

Huginn er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina, en Óli Stefán Flóventsson og lærisveinar hans í Grindavík eru með sex stig. Þeir unnu einnig fyrsta leikinn gegn Haukum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×