Íslenski boltinn

Blikar mæta liði úr fjórðu deild í 32 liða úrslitum bikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Valur vann bikarinn í fyrra.
Valur vann bikarinn í fyrra. vísir/anton brink
Tvær viðureignir á milli liða úr Pepsi-deildinni verða í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta en dregið var til næstu umferðar í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Stjarnan mætir Ólsurum og Fjölnir fær Val í heimsókn sem er ríkjandi bikarmeistari. FH fær KF úr Fjallabyggð í heimsókn og Selfoss heimsækir KR.

Fjórðu deildarlið Kríu sem er í 32 liða úrslitum í fyrsta sinn fær spennandi leik gegn Breiðabliki á heimavelli.

Leikið verður 25. og 26. maí.

Drátturinn í 32 liða úrslitum:

Stjarnan - Víkingur Ólafsvík

ÍBV - Huginn

Fram - HK

Víðir - Sindri

FH - KF

Fjölnir - Valur

Kría - Breiðablik

Grindavík - KA

ÍA - KV

KR - Selfoss

Haukar - Víkingur R.

Reynir S. - Vestri

Keflavík - Fylkir

Grótta - Augnablik

Þróttur - Völsungur

Leiknir R. - KFG




Fleiri fréttir

Sjá meira


×