Íslenski boltinn

Bjarni um gagnrýni föður síns: „Get lítið pælt í því sem honum finnst“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjarni Guðjónsson, þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu, fékk væna pillu frá Guðjóni Þórðarsyni, föður sínum, á Facebook í gær eftir 1-0 tap þeirra svörtu og hvítu gegn ÍBV í Eyjum í gær.

„Dapurtlegt að sjá leik KR-inga í dag, þeir virðst vera ástríðulausir og hafa ekki mikla löngun til að vinna fótboltaleiki,“ skrifaði Guðjón sem segir KR-liðið ekki vera í nógu góðu formi.

„Það vakna margar spurningar eins og formið á liðinu og sumir leikmenn liðsins virðast hreinlega vera latir. Það er ekki skrítið að liðið sé í þeirri stöðu sem það er í dag miðað við þessa frammistöðu,“ bætir Guðjón við en KR er í 7. sæti Pepsi-deildarinnar með níu stig eftir sjö leiki.

Bjarni var spurður álits á orðum föður síns af Herði Magnússyni í dag. Hann sagðist ofboðslega lítið geta verið að velta því fyrir sér sem menn væru að segja á Facebook og Twitter.

Þó að þetta sé hann get ég lítið verið að pæla í því sem honum finnst og hans áliti á okkur.“

Feðgarnir Bjarni, Guðjón og Þórður.
Hnífur sem Bjarni hafði ekki áhuga á

Margir hafa velt fyrir sér tilgangi ummæla Guðjóns enda ekki beint sá stuðningur sem sonur hefði þegið frá föður sínum á erfiðum tímum. 

Arnar Gunnlaugsson, sérfræðingur í Pepsi-mörkunum, sagði í þætti kvöldsins að það sé ekki eins og Jón Jónsson hafi sagt skoðun sína. Hann sé ekki sammála ummælum um leit leikmanna og óviss um formið á KR-ingum. Þeir hafi hins vegar verið lélegir.

„Af því að þetta er pabbi hans fannst mér óþægilegt að lesa það,“ sagði Arnar. „Þegar þú ert að ströggla þá viltu ekki fá svoleiðis comment, frá föður þjálfarans.“

Guðjón með draumakynslóð hjá KR

Hjörvar Hafliðason var sama sinnis og vísaði til hnífa sem lið fengu í bakið í umferðinni með mörkum á lokamínútunum sem réðu úrslitum.

„Ég held að þetta hafi verið hnífur sem Bjarni hafði ekki sérstakan áhuga á,“ sagði Hjörvar.

Minnti hann á að Guðjón þjálfaði KR á sínum tíma og „fékk draumakynslóð upp í hendurnar“. 

Guðjóni hafi þó ekki tekist að landa Íslandsmeistaratitlinum og óþægilegt hefði verið að lesa ummæli Guðjóns.



Það er hægt að sjá umræðuna um feðgana úr Pepsi-mörkunum í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×