Fótbolti

Leiknir marði botniðið á Seyðisfirði

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Leiknir í leik gegn FH í bikarnum í sumar
Leiknir í leik gegn FH í bikarnum í sumar vísir/eyþór
Leiknir Reykjavík lagði Huginn á Seyðisfjarðarvelli í Inkasso deildinni í fótbolta í dag 1-0 með marki seint í leiknum.

Ingvar Ásbjörn Ingvarsson skoraði sigurmarkið þegar sex mínútur voru til leiksloka en Huginn er í neðsta sæti deildarinnar með 4 stig eftir 9 leiki.

Leiknir fór upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er þremur stigum á eftir Þór sem á leik til góða síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×