Íslenski boltinn

Skammvinnt stuð á Ásvöllum | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sveinn Aron Guðjohnsen lagði upp mark HK.
Sveinn Aron Guðjohnsen lagði upp mark HK. vísir/hanna
Haukar og HK skildu jöfn, 1-1, í 9. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld.

Jóhanna K. Andrésdóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Ásvöllum í kvöld og tók meðfylgjandi myndir.

Leikurinn byrjaði mjög fjörlega og eftir fimm mínútna leik var staðan orðin 1-1.

Alexander Helgason kom Haukum yfir strax á 2. mínútu þegar hann skoraði beint úr hornspyrnu.

Heimamenn héldu forystunni aðeins í þrjár mínútur því á 5. mínútu skallaði Árni Arnarson aukaspyrnu Sveins Arons Guðjohnsen í netið og jafnaði metin.

Fleiri urðu mörkin ekki og leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.

Haukar eru í 7. sæti deildarinnar með 11 stig en HK í því níunda með níu stig.

Upplýsingar um markaskorara og gang leiksins eru fengnar af Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×