Íslenski boltinn

Ingvar Kale hættur hjá Val

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ingvar Kale í leik með Valsmönnum.
Ingvar Kale í leik með Valsmönnum. vísir/stefán
Markvörðurinn Ingvar Kale hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Valsmenn.

Ingvar missti sæti sitt í Valsmarkinu snemma sumars til Antons Ara Einarssonar og hefur ekki náð að vinna það til baka.

,,Ég og Óli ræddum saman á mjög góðum nótum og fengum þá niðurstöðu að það væri best fyrir mig að taka mér frí út tímabilið,“ sagði Ingvar í samtali við 433.is.

Markvörðurinn verður samningslaus eftir tímabilið og útilokar ekki að halda áfram hjá öðru félagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×