Fótbolti

Niður um eitt sæti hjá FIFA

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari. vísir/vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur niður um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA.

Ísland er nú í 23. sæti listans. Góður árangur Kosta Ríka, sem hoppar upp um sex sæti, gerir það að verkum að okkar menn fara niður um eitt sæti.

Ísland er sem fyrr efst Norðurlandaþjóða á listanum. Svíþjóð er í fertugasta sæti, Danmörk í 44. sæti, Noregur í 50 sæti og Finnland loks í sæti númer 61.

Ef eingöngu er horft til Evrópuþjóða er Ísland í 15. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×