Íslenski boltinn

Pepsi-draumur Keflvíkinga nánast úr sögunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar komast væntanlega ekki aftur upp í Pepsi-deildina.
Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar komast væntanlega ekki aftur upp í Pepsi-deildina. vísir/stefán
Keflavík gerði enn eitt jafnteflið í Inkasso-deildinni þegar liðið sótti Hugin heim í kvöld.

Ekkert mark var skorað í leiknum og liðin sættust því á skiptan hlut.

Stigið gerir meira fyrir Seyðfirðinga sem eru komnir upp í 9. sæti deildarinnar. Hugin hefur gengið vel að undanförnu og halað inn 14 stig í síðustu átta leikjum sínum.

Keflvíkingar eru hins vegar í 3. sæti deildarinnar með 30 stig, níu stigum á eftir toppliði KA og átta stigum á eftir Grindavík sem er í 2. sætinu. Bæði lið geta tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni á laugardaginn

Keflavík hefur aðeins tapað þremur leikjum í sumar en níu jafntefli hafa reynst liðinu afar dýrkeypt í toppbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×