Glamour

Best klæddu stjörnurnar á MTV EMA hátíðinni

Ritstjórn skrifar
Zara Larsson var glæsileg á rauða dreglinum.
Zara Larsson var glæsileg á rauða dreglinum. Myndir/Getty
MTV EMA hátíðin, eða European Music Awards, fór fram í Rotterdam í Hollandi í gærkvöldi. Þar komu saman helstu stjörnur tónlistarsenunnar og fögnuðu. 

Það var nóg um að vera á rauða dreglinum fyrir hátíðina. Tískan þar var ansi fjölbreytt og skemmtileg. Nóg var um áhættur en aðrir héldu sig á mottunni og klæddu sig í hefðbundnum stíl. 

Hér fyrir neðan má sjá okkar uppáhalds dress frá gærkvöldinu. 

Leikkonan Nina Dobrev var í fallegum lillabláum síðkjól.
Tinie Tempa var flottur í óvenjulegum jakkaföt með sólgleraugu.
Sænska söngkonan Zara Larsson var í fallegum hvítum blúndukjól.
Jaden Smith er alltaf jafn flott klæddur.
Bibi Zhou var í fallegri kápu við útvíðar hvítar buxur.
Joan Smalls bar af í fallegum svörtum gegnsæum kjól sem sýndi hennar löngu lappir.
Fyrirsætan Winnie Harlow var í síðerma blúndukjól.
Charli XCX var greinilega í diskóstuði í þessari múnderingu.





×