Golf

Sjóðheit Ólafía Þórunn með þriggja högga forskot á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Abú Dabí í dag.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Abú Dabí í dag. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er heldur betur að stimpla sig inn í hóp atvinnukylfinga á LET Evrópumótaröðinni en hún er í efsta sæti eftir tvo daga á Fatima Bint Mubarak mótinu í Abú Dabí.  Við erum ekki að tala um neitt smámót heldur mót á á sterkustu mótaröð Evrópu.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kann greinilega afar vel við sig í hitanum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og spilamennska hennar þessa fyrstu tvo daga er löngu orðin söguleg.

Ólafía Þórunn spilaði holurnar átján á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Hún fékk sjö fugla, einn skolla en hún náði fugli á lokaholunni. Mótshaldarar skráðu það fyrst sem örn en það var ekki rétt.

Ólafía Þórunn hefur þar með spilað tvo fyrstu hringina óaðfinnanlega og hún hefur nú þriggja högga forskot þegar mótið er hálfnað.

Ólafía Þórunn byrjaði daginn á seinni nýju holunum og fékk hún þrjá fugla á fyrstu fimm holum dagsins eða holum ellefu, þrettán og fjórtán. Hún paraði síðan fjórar holur í röð.

Ólafía byrjaði seinni hlutann einnig frábærlega þegar hún fékk fugla á fyrstu tveimur holum hans sem voru hola eitt og tvö. Ólafía Þórunn fékk skolla á holu þrjú en vann það til baka með því að fá fugl á sjöundu holunni.

Ólafía Þórunn sýndi mátt sinn á lokaholunni þegar hún fékk sjöunda fugl dagsins. Stórbrotinn endir á stórkostlegum degi.

Ólafía Þórunn lék fyrsta hringinn í gær á sjö höggum undir pari sem skilaði henni efsta sætinu. Það var í fyrsta sinn sem íslenskur kylfingur er í forystu á svo stóru golfmóti en Ólafía lék það síðan eftir í dag.

Gwladys Nocera frá Frakklandi spilaði mjög vel í dag og var um tíma búin að jafna Ólafíu. Hún tapaði hinsvegar höggi á lokaholunni og er því á tíu höggum undir pari.

Nocera er í öðru sæti ásamt Georgiu Hall frá Englandi, Beth Allen frá Bandaríkjunum og Holly Clyburn frá Englandi. Þær hafa allar spila fyrstu 36 holurnar á tíu höggum undir pari.

Þetta hefur verið sögulegt ár hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem setti meðal annars nýtt mótsmet þegar hún vann Íslandsmeistaratitilinn með því að spila á ellefu höggum undir pari.  

Það gæti orðið enn sögulegri takist henni að vinna sér þátttökurétt á LGPA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Fyrst á dagskrá er aftur að klára tvo síðustu hringina í Abú Dabí og þar er hún til alls líkleg eftir stórkostlega spilamennsku tvo fyrstu dagana.

Hér má fylgjast með stöðunni í mótinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×