Glamour

Conor McGregor klæddist Gucci um helgina

Ritstjórn skrifar
Conor í feld frá Gucci.
Conor í feld frá Gucci. Instagram/Skjáskot
Það er greinilegt að Gucci, undir stjórn Alessandro Michele, er að slá í gegn hjá öllum. Sama hvort sem það eru fyrirsætur eða íþróttamenn, þá vilja allir eignast flíkur úr línunum hans. Conor McGregor er engin undantekning. 

Fyrir bardagann sinn um helgina við Eddie Alvarez birti McGregor myndir af sér í Gucci frá toppi til táar. Hann var í hvítri minka kápu við klassíska Gucci skó. Alls ekki amalegt hjá okkar manni. Jafnvel er þetta fullkomna dress ástæðan fyrir að hann fékk sjálfstraustið til að rústa bardaganum um helgina, hver veit. 

Lick them they're spotless

A photo posted by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on






×