Bílar

Hvaða 10 bílgerðir á fólk lengst?

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota Highlander er sá bíll sem bílkaupendur í Bandaríkjunum á lengst allra bíla.
Toyota Highlander er sá bíll sem bílkaupendur í Bandaríkjunum á lengst allra bíla.
Sumir bílar endast illa og ná jafnvel ekki 10 ára aldri. Lélegir bílar skipta líka oft um hendur þar sem eigendur þeirra hafa gefist uppá þeim. Því er forvitnilegt að skoða hvaða bílgerðir það eru sem endast lengst í höndum fyrstu kaupenda þeirra. Það hefur einmitt verið gert í henni Ameríku og þar kemur margt spennandi í ljós.

Í fyrsta lagi þá eru allar 10 efstu bílgerðirnar japanskar. Í öðru lagi á Toyota/Lexus 6 bíla af þessum efstu 10. Í þriðja lagi eru efstu fjórir bílarnir frá Toyota. Sá sem er efstur á blaði er Toyota Highlander jeppinn en fyrstu eigendur þeirra eiga þá meira en 10 ár í 32,1% tilfella. Er það 2,5 sinnum lengri tími en meðaltalið vestanhafs.

Í þessari könnun voru 2,5 milljónir bíla af árgerðunum 1981 til 2006 kannaðar og eigendur þeirra spurðir hvort þeir væru fyrstu kaupendur bílanna. Listi þeirra 10 bíla sem lengst voru í höndum fyrstu kaupenda er svona. Prósentan sýnir hve hátt hlutfall bílgerðarinnar var enn í höndum fyrsta kaupanda og í seinni dálknum sést hversu mikið hærra það hlutfall er en meðaltalið í Bandaríkjunum.



1.   Toyota Highlander Hybrid     32,1%     2,5x



2.   Toyota Prius                            32,0%    2,5x



3.   Toyota Highlander                 29,0%    2,2x



4.   Toyota Sienna                         28,7%    2,2x



5.   Honda Pilot                             27,2%    2,1x



6.   Honda CR-V                            25,2%    2,0x



7.   Toytota RAV4                         24,9%    1,9x



8.   Subaru Forester                     24,2%    1,9x



9.   Lexus RX Hybrid                   24,1%    1,9x+



10. Honda Odyssey                      24,0%    1,9x






×