Bílar

Eigendur Saab hefja framleiðslu í lok árs

Finnur Thorlacius skrifar
Saab 9-3 í þremur útgáfum.
Saab 9-3 í þremur útgáfum.
National Electric Vehicle Sweden (NEVS) sem á nú framleiðsluleyfi á Saab bílum er ekki að baki dottið þó svo að töf hafi orðið á tilætlaðri framleiðslu Saab bíla með rafmagnsdrifrás. Til stendur hjá NEVS að hefja framleiðslu á Saab 9-3 bílnum í lok þessa árs en nú er verið að vinna að uppsetningu verksmiðjunnar í Tianjin í Kína þar sem bílarnir verða framleiddir.

Upphaflega meiningin var að framleiðsla hæfist snemma á þessu ári. NEVS hefur nýverið fengi framleiðsluleyfi frá Chinese National Development Reform Commision til framleiðslu bíla Saab í Kína, en þó munu bílarnir ekki fá að halda Saab nafninu því nafnið fylgdi ekki með í kaupunum.

Til stendur hjá NEVS að framleiða uppí 150.000 bíla pöntun frá Panda New Energy í Kína og verða það 9-3 bílar með rafmagnsdrifrás, en verksmiðjan í Tianjin mun hafa framleiðslugetu uppá 200.000 bíla á ári þegar hún verður fullbyggð. Þessi samningur á milli NEVS og Panda New Energy er að virði 12 milljarða dollara, eða 1.370 milljarða króna og var hann undirritaður árið 2015.

NEVS ætlar að kynna 9-3 bílinn með rafmagnsdrifrás seinna á þessu ári og eftir það stendur til að þróa nokkra aðra bíla sem allir verða drifnir áfram á rafmagni.






×