Golf

Ólafía úr leik í Kanada

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafía kemur sterkari til baka á næsta mót.
Ólafía kemur sterkari til baka á næsta mót. vísir/getty
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á opna kanadíska meistaramótinu en hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn í kvöld.

Hún stóð ekki vel að vígi fyrir daginn eftir að hafa spilað á +4 í gær.

Ólafía náði sér heldur ekki á strik í kvöld og kom í hús á 73 höggum eða tveim höggum yfir pari. Hún endaði því mótið á +6.

Niðurskurðarlínan var í +1 þannig að Ólafía var ansi fjarri því að komast áfram að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×