Barcelona vill ganga frá kaupunum á Coutinho innan sjö daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2018 17:00 Philippe Coutinho. Vísir/Getty
Viðræður standa nú yfir á milli Barcelona og Liverpool um kaup spænska félagsins á Brasilíumanninum Philippe Coutinho. Guillem Balague, sérfræðingur Sky Sports í spænska boltanum, hefur heimildir fyrir því að Barcelona vilji ganga frá kaupunum á Coutinho innan sjö daga. Liverpool hafnaði þremur tilboðum frá Barcelona í Coutinho síðasta haust en það hæsta var upp á 113 milljónir punda. Heimildi herma að Barcelona sé tilbúið að greiða 133 milljónir punda fyrir Coutinho en 35,5 milljónir yrðu þá árangurstengdar greiðslur. Philippe Coutinho verður ekki með Liverpool á móti Everton í enska bikarnum í kvöld og missti líka af leiknum á móti Burnley á Nýársdag. Hann er sagður meiddur aftan í læri en var einnig meiddur í ágúst þegar Barcelona bauð margoft í hann. Liverpool vildi alls ekki selja Philippe Coutinho í ágúst en menn hjá félaginu eru opnari fyrir möguleikanum að selja sína stærstu stjörnu núna ekki síst vegna uppkomu Mo Salah. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, vildi ekkert tala um mál Philippe Coutinho á blaðamannafundi í gær en það er margt sem bendir til þess að Coutinho verði kominn í Barcelona-treyju fyrir lok mánaðarins. Barcelona er enn að reyna að fylla í skarð Neymar og þá má lesa í grein Balague að félagið hugsi Coutinho líka til að létta álaginu af Andrés Iniesta. Philippe Coutinho hefur hinsvegar spilað með Liverpool í Meistaradeildinni og má því ekki spila með Barcelona í Evrópukeppninni. Hann gæti því leyst Iniesta af í deildarleikjum liðsins og er því ekki aðeins hugsaður í stöðu fremstu manna. Philippe Coutinho er með sjö mörk og sjö stoðsendingar í fjórtán leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og alls 12 mörk og 9 stoðsendingar í öllum keppnum á tímabilinu. Philippe Coutinho
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira