Íslandsmeistaraþjálfari í 2. deildina Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júlí 2018 10:00 Hrafn Kristjánsson fer úr Domino´s-deildinni í 2. deildina. mynd/álftanes
Hrafn Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari körfuboltaliðs Álftanes sem leikur í 2. deildinni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Þetta er gríðarlegur hvalreki fyrir Álftanes en Hrafn er einn af betri þjálfurum landsins. Hann gerði KR að tvöföldum meisturum árið 2011 og Stjörnuna að bikarmeisturum árið 2015. Hann fer nú niður um tvær deildir úr Domino´s-deildinni í 2. deildina. Hrafn stýrði Stjörnunni í þrjú ár og kom liðinu ávallt í úrslitakeppnina. Liðinu var sópað í sumarfrí í undanúrslitum 2017 og tapaði svo átta liða úrslitum á síðustu leiktíð. Hann hóf þjálfaraferilinn hjá KFÍ fyrir vestan en stýrði svo Þór Akureyri og Breiðabliki áður en að hann fór í Vesturbæinn og síðar í Garðabæinn. Hann flytur sig nú um set en ekki langt. Reyndar innan sama sveitarfélags. Álftanes vann 3. deild karla á síðustu leiktíð og leikur því í 2. deildinni í vetur auk þess sem að liðið mun taka þátt í Maltbikarnum. Út á Álftanesi mun hann stýra fyrrverandi aðstoðarþjálfara sínum, Kjartani Atla Kjartanssyni, en stórskyttan og fjölmiðlamaðurinn er stjörnuleikmaður Álftanes. Þá mun hann fá það erfiða verkefni að virkja „Stóra barnið“ undir körfunni.
Körfubolti Mest lesið Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Fótbolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti Markalaust á Etihad Fótbolti Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti Úkraínski heimsmeistarinn handtekinn á flugvelli Sport Salvatore Schillaci látinn Fótbolti Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira