Enski boltinn

Rashford frá í einhvern tíma

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Marcus Rashford
Marcus Rashford vísir/getty
Marcus Rashford gæti verið frá keppni í nokkurn tíma eftir að hafa meiðst í leik Manchester United og West Ham um helgina.

Rashford fór haltur af velli í seinni hálfleik eftir að hafa meiðst á nára.

„Hann fann til í nára svo hann er líklega frá í einhvern tíma. Ég get ekki sagt til um það nánar eins og er,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.

Nokkur meiðslavandræði eru í framlínu Manchester United, Mason Greenwodd var veikur og þá eru Anthony Martial og Paul Pogba meiddir.

„Þetta er bara eitt af þessum augnablikum. Sögulega séð þá höfum við verið í nokkrum vandræðum með varnarmenn í meiðslum síðustu ár, núna eru það framherjar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×