Kompany segir að Manchester City þurfi ekki að kaupa miðvörð Anton Ingi Leifsson skrifar 12. nóvember 2019 16:30 Vincent Kompany í búningi Manchester City. vísir/getty
Vincent Kompany, fyrrum miðvörður og fyrirliði Manchester City, segir að fyrrum félag sitt þurfi ekki að kaupa miðvörð í janúar þrátt fyrir vandræði liðsins. Kompany yfirgaf City í sumar og er nú spilandi þjálfari hjá Anderlecht í Belgíu. Það hefur hins vegar ekki gengið sem skildi og byrjunin á þjálfaraferlinum erfið hjá Kompany. Aymeric Laporte er meiddur til lengri tíma og því eru einungis tveir miðverðir eftir í hóp Manchester City; þeir John Stones og Nicolas Otamendi. Í stórleik helgarinnar gegn Liverpool var Fernandinho í miðverðinum en hann hefur verið að leysa af í miðverðinum undanfarnar vikur. Kompany segir að þeir þurfi ekki fleiri varnarmenn. „Ég held að þeir þurfi ekki að kaupa annan miðvörð,“ sagði fyrrum fyrirliðinn í samtali við Sky Sports eftir leik helgarinnar. Hann segir tapið gegn Anfield um helgina skýranlegt. „Við lendum alltaf í vandræðum á Anfield. Ég sagði á sunnudaginn að City hafi ekki unnið í 25 ár á Anfield og það er erfitt. Þetta eru tveir leikir í sama leiknum; þú ert að spila gegn frábæru liði og berjast gegn sögunni.“Will Manchester City spend big on their defence once again? — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) November 12, 2019 „Snúðu þessu við og það sama mun gerast fyrir Liverpool. Þeir eru að berjast við söguna að hafa ekki unnið deildina í 30. ár.“ „Það ætti að hjálpa City. Besta vörn City hefur verið að sækja. Það er engin ástæða fyrir því að breyta því. Um leið og þeir tengja bestu frammistöðurnar er ég viss um að sigrarnir munu hrannast inn,“ sagði Kompany.
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira