Sport

Davíð Þór: Hefðum bara þurft að vera með fúnkerandi línu­vörð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Davíð í settinu í gær.
Davíð í settinu í gær. vísir/skjáskot

Úrslitaleikur FH og Stjörnunnar frá árinu 2014 var gerður upp í fyrsta þætti af Sportið í kvöld sem var á dagskrá Stöðvar 2 Sport sí gærkvöldi. Ríkharð Óskar Guðnason fékk fyrirliðanna úr leiknum, þá Davíð Þór Viðarsson fyrirliða FH og Veigar Pál Gunnarsson fyrirliða Stjörnunnar í settið til sín.

Farið var um viðan völl en öll atvik leiksins voru greind í þaula. Þar á meðal fyrsta mark leiksins sem Ólafur Karl Finsen skoraði en í endursýningu kom í ljós að hann var rangstæður. Davíð segir að hann hafi fyrst fengið að vita þetta eftir leikinn og ekki hafi verið rætt um þetta í hálfleik.

„Heimir talaði ekki neitt um þetta og ég held ég hafi ekki fengið að vita það fyrr en eftir leikinn. Ég sé ekki að Ólafur Karl sé rangstæður á vellinum en það er engin blöðum um það að flétta að hann er rangstæður,“ sagði Davíð og hélt áfram.

„Það er ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Fyrst þegar Arnar Már skallaði hann og svo kemur einhver annar Stjörnumaður við boltann. Ég var rosalega lengi að sætta mig við þetta.“

„Við hefðum bara þurft að vera með fúnkerandi línuvörð þarna. Hann var ekki fúnkera í þessum leik. Það er ósköp einfalt. Maður hlýtur að geta verið hreinskilinn með það. Ég held að hann sjálfur sjái að þetta var frekar slæm ákvörðun að lyfta ekki flagginu.“

Stjarnan vann leikinn 2-1 að endingu og varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn.

Klippa: Leikur FH og Stjörnunnar gerður upp: Davíð um fyrsta markið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×