Sport

Dag­skráin í dag: Hörður Björg­vin og for­keppni Meistara­deildar Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hörður Björgvin og félagar þurfa sigur í kvöld.
Hörður Björgvin og félagar þurfa sigur í kvöld. Vísir/Getty

Tveir leikir í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu er í aðalhlutverki á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Grikklandi þar sem Panathinaikos tekur á móti Braga. Hörður Björgvin Magnússon leikur með heimamönnum sem verða að vinna með tveggja marka mun til að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Vodafone Sport

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá Tyrklandi þar sem Galatasaray tekur á móti Molde frá Noregi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Heimamenn leiða 3-2 eftir fyrri leik liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×