Sport

Dagskráin í dag: Formúlan, golf, ítalski og þýski boltinn og fleira

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harry Kane og félagar í Bayern München sækja Borussia Mönchengladbach heim í þýska boltanum í dag.
Harry Kane og félagar í Bayern München sækja Borussia Mönchengladbach heim í þýska boltanum í dag. Christof Koepsel/Getty Images

Eins og svo oft áður er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 á þessum fína laugardegi. Alls verður boðið upp á níu beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn fær sviðið á Stöð 2 Sport 2 í dag þar sem Bologna tekur á móti Cagliari klukkan 16:20 áður en Lazio sækir Ítalíumeistara Napoli heim klukkan 18:35.

Stöð 2 Sport 3

Bein útsending frá áhugamannamótinu Walker Cup í golfi þar sem tíu manna lið frá Bretlandi og Norður-Írlandi mæta kylfingum frá Bandaríkjunum hefst klukkan 12:30. 

Stöð 2 Sport 4

Golfið heldur svo áfram á Stöð 2 Sport 4 þegar KPMG Women's Irish Open á LET-mótaröðinni hefst klukkan 14:00 áður en Portland Classic á LPGA-mótaröðinni fer af stað klukkan 22:00.

Vodafone Sport

Vodafone Sport er full af mótorsporti og fótbolta í dag og við hefjum leik á æfingu þrjú fyrir ítalska kappaksturinn í Formúlu 1 klukkan 10:25.  Tímatakan tekur svo við klukkan 13:55 þar sem ökumenn berjast um ráspólinn.

Þá treður þýski fótboltinn sér á milli mótorsporta þegar Borussia Mönchengladbach tekur á móti Þýskalandsmeisturum Bayern München klukkan 16:20.

Darlington Raceway í Nascar Infinity lokar svo deginum klukkan 19:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×