Sport

Dagskráin í dag: Formúlan, golf, fótbolti og Dusty á Blast Premier

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Liðfélagarnir Max Verstappen og Sergio Perez geta tryggt heimsmeistaratitil bílasmiða fyrir Red Bull-liðið um helgina.
Liðfélagarnir Max Verstappen og Sergio Perez geta tryggt heimsmeistaratitil bílasmiða fyrir Red Bull-liðið um helgina. Qian Jun/MB Media/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á tíu beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum á þessum fallega föstudegi. Það ættu því allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport 4

Við fylgjumst með öðrum degi Swiss Ladies Open á LET-mótaröðinni í golfi frá klukkan 13:00 á Stöð 2 Sport 4.

Stöð 2 eSport

Dusty mætir til leiks á Blast Premier mótaröðinni í CS:GO í dag. Þetta er í þriðja sinn sem Dusty tekur þátt í forkeppninni, en fyrsti leikur liðsins er klukkan 10:00 gegn MOUZ.

Klukkan 11:30 mætast svo 416Olsk og Victory Zigzag, en klukkan 13:00 er komið að sigurliðamóti hóps A. Tapliðamót hóps A fer svo fram klukkan 14:30 áður en ákvörðunarmótið hefst klukkan 16:00.

Vodafone Sport

Þá verður nóg um að vera á Vodafone Sport og við hefjum leik klukkan 09:25 með fyrstu æfingu helgarinnar í Formúlu 1 sem fer fram í Singapúr að þessu sinni. Önnur æfingin hefst svo klukkan 12:55 og verður einnig í beinni útsendingu á Vodafone Sport.

Þá er einnig leikið í þýsku úrvalsdeild kvenna klukkan 16:10 og klukkan 18:55 hefst viðureign Southampton og Leicester í ensku 1. deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×